Áminning – Umsóknarfrestur í Kötlu félagsmannasjóð er til og með 28. febrúar
- fosa2018
- Feb 25, 2021
- 1 min read
Updated: Mar 1, 2021
Við minnum á að búið er að opna fyrir umsóknir í Kötlu félagsmannasjóð sjá nánar: katla.bsrb.is

Katla er sjóður fyrir þá sem voru félagsmenn starfandi hjá sveitarfélögum, Dalbæ, Hjallastefnu og sjálfseignastofnana um lengri eða skemmri tíma á árinu 2020.
Til að fá greitt úr sjóðnum þurfa félagsmenn að sækja um á rafrænni umsóknarsíðu sjóðsins og leggja fram viðeigandi upplýsingar svo sem síðasta launaseðil viðmiðunarárs, starfshlutfall og starfstíma yfir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2020.
Sjóðurinn er jöfnunarsjóður sem til varð í síðustu kjarasamningum og greiðir til þeirra félagsmanna sem rétt eiga að hámarki kr. 80.000.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar, greitt verður úr sjóðnum í apríl.
Kynntu þér málið og sæktu um hér: www.minarsidurkatla.bsrb.is
Comments