top of page

Orlofshús

Akureyri

Skálatún

Íbúð á Akureyri í keðjuraðhúsi að Skálatúni 31, neðri hæð merkt FOSA. Hún er staðsett innarlega i bænum stutt t.d í BÓNUS, leikvöllur rétt hjá. Íbúðin er þriggja herbergja skiptis í tvö svefnherbergi, stofu, hol, eldhús,bað,þvottahús og geymslu.Íbúðin er búin öllum venjulegum heimilisbúnaði. Í eldhúsi er uppþvottavél, þvottavél og þurrkari í þvottahúsi. Íbúðin er búin rúmstæðum fyrir sex auk tveggja ferðarúma. Sængur og koddar eru fyrir átta. Borðbúnaður fyrir tólf.Út úr stofu  er gengið út á pall  þar er heitur pottur.

 

Aðrar upplýsingar:

Að lokinni dvöl á að ræsta íbúðina. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín.

Lykill afhendist hjá SECURITAS ,Tryggvabraut 10 Akureyri. Leigutími allt árið.

Strandgata

Íbúð á Akureyri að Strandgötu 3, á 2 hæð með bílageymslu á jarðhæð. Hún er staðsett í hjarta bæjarins stutt í alla þjónustu. Íbúðin er þriggja herbergja búin öllum venjulegum heimilisbúnaði. Í eldhúsi er uppþvottavél, þvottavél og þurrkari á baði. Íbúðin er búin rúmstæðum fyrir sex auk tveggja ferðarúma. Sængur og koddar eru fyrir átta. Borðbúnaður fyrir tólf. Að lokinn dvöl á að ræsta íbúðina. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín.

Lykill afhendist hjá SECURITAS ,Tryggvabraut 10 Akureyri. Leigutími allt árið

 

Aðrar upplýsingar:

Að lokinni dvöl á að ræsta íbúðina. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín.

Lykill afhendist hjá SECURITAS ,Tryggvabraut 10 Akureyri. Leigutími allt árið.

Reykjavík

Ljósheimar 22

Íbúð á 5. hæð með góðu útsýni yfir borgina, lyfta er í húsinu Íbúðin er tveggja herbergja búin öllum venjulegum húsbúnaði. Rúm er fyrir fjóra auk tveggja gestarúma. Sængur og koddar eru til staðar fyrir 8 manns, einnig fylgir rúmfatnaður og þvottur á honum. Þvottavél og þurrkari er í kjallar .Að dvöl lokinni á að ræsta íbúðina.

 

Aðrar upplýsingar:

Lykill afhendist á skrifstofu FOSA. Leigutími allt árið.

Ljósheimar 18a

Íbúð á 4 hæð, lyfta er í húsinu. Íbúðin er fjögurra herbergja búin öllum venjulegum húsbúnaði. Rúm er fyrir 6 auk tveggja gestarúma. Sængur og koddar eru til staðar fyrir 8 manns, einnig fylgir rúmfatnaður og þvottur á honum. Þvottavél er í íbúðinni. Að dvöl lokinni á að ræsta íbúðina.

 

Aðrar upplýsingar:

Lykill afhendist á skrifstofu FOSA. Leigutími allt árið.

Orlofshús í Úlfsstaðalandi á Héraði.

 

Þetta er mjög fallegur bústaður í fögru umhverfi, er  með tveimur svefnherbergjum og svefnlofti. Búinn öllum venjulegum heimilisbúnaði.   Rúm eru fyrir fjóra á neðri hæð, á svefnlofti eru tvö rúm og fjórar dýnur. Við húsið er heitur pottur.

 Að lokinni dvöl á að ræsta bústaðinn.

Aðrar upplýsingar:

Lykill afhendist á skrifstofu FOSA. Dvalargestir þurfa að hafa með sér lín. Leigutími er allt árið.

bottom of page