Vefnámskeið: Góð geðheilsa, sterkari stofnun!
18.sept. Fræðslusetrið Starfsmennt verður með vefnámskeiðið Góð geðheilsa, sterkari stofnun! Í samvinnu við Hugarafl, skráning: https://bit.ly/4giiqrb
Rætt verður m.a. hvernig starfsumhverfi getur stuðlað að góðri geðheilsu og hvernig samstarfsfólk og yfirmenn geta stutt þau sem eru að vinna í bataferli sínu.
Námskeiðið er vefnám haldið í rauntíma kl. 14 - 16 á Teams en upptaka verður aðgengileg í viku að námskeiði loknu fyrir skráða þátttakendur.
Frítt er fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða, sjá lista hér: https://bit.ly/3w82FQV
Aðrir geta skráð sig gegn námskeiðagjaldi.
Comments