Sumarlokun skrifstofu FOSA
Skrifstofa FOSA verður lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks dagana 8. júlí til 22. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Á þessum tíma verður ekki hægt að bóka í orlofseignir félagsins, en sumarið er að verða fullbókað í öllum eignum. Byrjað verður að taka aftur við bókunum þegar skrifstofan opnar að nýju.
Fyrir mjög brýn erindi sem alls ekki geta beðið er hægt að hafa samband á netfangið fosa.formadur@gmail.com og verður þeim svarað þar eins fljótt og auðið er.
Sumarkveðja
Stjórn og starfsfólk FOSA
コメント