Kjarasamningur undirritaður.
BSRB og Samband Íslenskra sveitarfélaga rituðu undir kjarasamning þann 10. júní sl. Félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum hafa fengið sent rafrænt kynningarefni vegna hans nú í morgun
Samningurinn hefur stuttan gildistíma, gildir til 31. mars 2024, og er afturvirkur til 1. apríl 2023.
Mánaðarlaun hækka að lágmarki um 35. þúsund kr.
Demberuppbótt verður 131.000.
Samkomulag náðist um sáttagreiðslu að upphæð 105.000 kr.
Einnig felur samningurinn í sér hækkun á lægstu launum og viðbótargreiðslur fyrir tiltekin starfsheiti.
Kosning vegna samningsins mun hefjast í dag og standa fram til mánudagsins 19. júní (kl. 10:00).
Kosningin mun verða rafræn, og félagar í FOSA fá sendar upplýsingar vegna hennar síðar í dag.
Comments