Fosa félagar,þrjú vefnámskeið í haust á vegum Starfsmenntar
- fosa2018 
- Aug 27, 2020
- 1 min read
Opin skráning á þrjú vefnámskeið á vegum Starfsmenntar
Gerðu ráð fyrir breytingum - Vefnám Fimmtudaginn 17. sept. kl. 09:00 - 12:00 Á þessu námskeiði læra þátttakendur...
- að skilja og þekkja ferli breytinga 
- að þekkja aðferðir og leiðir til að takast á við breytingar 
- að geta valið og hagnýtt þau verkfæri sem kynnt eru til að takast á við breytingar 
Styttri vinnuvika-betri tímastjórnun - Vefnám Mánudaginn 21. sept. kl. 09:00 - 11:00 Á þessu námskeiði læra þátttakendur...
- betra skipulag 
- betri forgangsröðun verkefna 
- að skapa meiri tíma fyrir mikilvægustu verkefnin 
Þrautseigja í lífi og starfi - Vefnám Fimmtudaginn 24. sept. kl. 09:00 - 12:00 Á þessu námskeiði læra þátttakendur...
- að skilja hvað átt er við þegar talað er um þrautseigju og hvað hugtakið felur í sér 
- að þekkja aðferðir og leiðir til að efla þrautseigju 
- að beita þeim verkfærum sem þeir fá í hendur á námskeiðinu til að efla þrautseigju. 
Nánari upplýsingar og skráning hjá sment.is
Nám og þjónusta Starfsmenntar er félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu. Öðrum er bent á starfsmenntunarsjóði sinna stéttarfélaga.



Comments