top of page

Verkfalli hefur verið aflýst

Aðildarfélög BSRB sem boðað höfðu til verkfallsaðgerða undirrituðu öll kjarasamninga við viðsemjendur í gærkvöldi og nótt og var verkfallsaðgerðum því aflýst.

Samninganefnd BSRB gagnvart Sambandi íslenskra sveitararfélaga, fyrir hönd 14 aðildarfélaga BSRB, skrifaði rétt eftir miðnætti undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambandsins með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Samningurinn nær til 7000 félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögunum og gildir frá 1. apríl 2019 til 31.mars 2023.Þu félög sem nú hafa undirritað

Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu, Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu, Starfsmannafélag Fjallabyggðar, Starfsmannafélag Fjarðabyggðar, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Suðurnesja og Starfsmannafélag Vestmannaeyja. Boðum verkföllum sem áttu að hefjast á miðnætti hefur fyrir vikið verið aflýst.

Meðal helstu atriða kjarasamningsins er:

Stytting vinnuvikunnar sem hefur um árabil verið eitt af helstu baráttumálum BSRB. Samkomulagið felur í sér miklar lífsgæðabreytingar og er um tímamóta samkomulag að ræða

Laun hækka í samræmi við lífkjarasamninginn svokallaða

Stofnun Félagsmannasjóðs sem felur í sér 80 þúsund króna árlega greiðslu til félagsmanna

30 daga orlof fyrir alla Hinn nýi kjarasamningur verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum.

bottom of page