top of page

Þurfum að beita Þeim vopnum sem við höfum

Viðsemjendur BSRB geta ekki sýnt félagsmönnum þá óvirðingu að draga viðræður um nýjan kjarasamning von úr viti og nú er kominn tími til að opinberir starfsmenn beiti þeim vopnum sem þeir hafa til að þrýsta á um gerð kjarasamnings, skrifar Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í nýjum pistli.

Þar fer hún yfir stöðuna í kjaraviðræðunum og öðrum verkefnum sem bandalagið hefur sinnt á árinu sem er að líða.

„Í gegnum tíðina hafa opinberir starfsmenn þurft að standa í harðvítugri baráttu til að ná fram mikilvægum kjarabótum. Þar hefur skipt gríðarmiklu máli sú góða samstaða sem náðst hefur og sá þrýstingur sem sameinað afl rúmlega 22 þúsund félagsmanna í aðildarfélögum BSRB getur beitt,“ segir Sonja. Kjarasamningar þorra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá því í byrjun apríl, eða í nærri níu mánuði, og lítið virðist þokast í samkomulagsátt.

Sonja segir að á nýju ári þurfi bandalagið á samstöðu opinberra starfsmanna að halda enn á ný. Full samstaða sé innan BSRB og hjá aðildarfélögum að ekki verði gengið til kjarasamninga nema þannig að fólk geti lifað af á launum sínum. Stytta verði vinnuvikuna hjá öllum, en ganga lengra hjá vaktavinnufólki en þeim sem eingöngu vinna í dagvinnu. Þá þurfi að taka markviss skref í átt að jöfnun launa á milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins og semja um bæði bætt starfsumhverfi og launaþróunartryggingu.

„Tíminn er runninn frá okkur. Við getum ekki beðið samningslaus, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð,“ segir Sonja. „Nú þurfum við að beita þeim vopnum sem við höfum til að tryggja þetta mikla hagsmunamál. Breytist viðhorf viðsemjenda okkar ekki snarlega á nýju ári má búast við að við förum að huga að aðgerðum snemma á næsta ári.“

bottom of page