top of page

Persónuuppbót/Desemberuppbót

Bæjarstarfsmenn.

Starfsmaður í fullu starfi fær greidda desemberuppbót (persónuuppbót) 1. desember ár hvert. Með fullu starfi er átt við 100% starf tímabilið 1. janúar til 30. nóvember sama ár. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall og/eða starfstíma, þó þannig að hann hafi starfað samfellt a.m.k. frá 1. september það ár. fá fulla uppbót. Það sama gildir um einstaklinga sem hafa verið í fæðingarorlofi eða launalaust frá störfum vegna veikinda í allt að sex mánuði.

Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu, en hafði þá starfað samfellt í a.m.k. 6 mánuði skal einnig fá greidda persónuuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu. Hlutfall skv. þessari málsgrein er reiknað sem hlutfall af fullri vinnu (100%) í 12 mánuði á almanaksárinu af síðast gildandi persónuuppbót. Kr. 113.000

Fá svo leiðréttingu ef samið verður um hærri desemberuppbót í komandi kjarasamningum.

Ríkisstarfsmenn.

Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á uppbótina reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili.

Þar sem ekki hefur enn tekist að semja um nýja kjarasamninga hefur náðst samkomulag um að hækka desemberuppbót 2019 með sama hætti og undanfarin ár. Kr. 92.000

bottom of page