top of page

Kynning: Raunfærnimat til styttingar náms á Háskólabrú Keilis

Raunfærnimat til styttingar náms á Háskólabrú Keilis

Haustið 2019 munu Fræðslusetrið Starfsmennt og Keilir bjóða raunfærnimat í nokkrum greinum Háskólabrúar í þriðja sinn. Þau sem standast raunfærnimatið geta stytt leiðina til lokaprófs af Háskólabrú Keilis eins og sagt er frá hér að neðan. Ef þú ert 23 ára eða eldri, með samtals þriggja ára almenna starfsreynslu og hefur lokið að lágmarki 70 einingum úr framhaldsskóla gætirðu átt erindi í raunfærnimat. Komdu og kynntu þér málið! Kynningarfundur er áætlaður þriðjudaginn 15. október kl. 17:00 hjá Starfsmennt í Skipholti 50b, 105 Reykjavík. Hvað er Háskólabrú Keilis? Háskólabrú Keilis býður upp á nám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi og uppfylla nemendur að loknu náminu inntökuskilyrði í allar deildir Háskóla Íslands. Auk þess hafa útskrifaðir nemendur fengið inngöngu í nám í öðrum háskólum bæði hérlendis og erlendis. Nánari upplýsingar er að finna á www.keilir.net/haskolabru. Hvaða einingum er mikilvægast að hafa lokið? Mikilvægast er að hafa lokið 6 einingum í stærðfræði, 6 einingum í íslensku og 6 einingum í ensku. Hvað er raunfærnimat? Nám fer ekki eingöngu fram innan veggja skólans heldur við alls konar aðstæður í lífinu. Markmiðið með raunfærnimati er að einstaklingur fái viðurkennda þá færni sem hann býr yfir þannig að hann þurfi ekki að sækja formlegt nám í því sem hann kann. Nánari upplýsingar er að finna á www.frae.is og www.naestaskref.is. Hvaða greinar er hægt að taka í raunfærnimati? Dönsku, Stærðfræði 1, Stærðfræði 2, Upplýsingatækni, Upplýsingatækni og tölfræði, og Bókfærslu (Inngangur að viðskiptafræði 1). Hvar fær ég frekari upplýsingar? Upplýsingar um raunfærnimatið og tilhögun þess veitir Sólborg Alda Pétursdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Starfsmennt í síma 550 0060, solborg@smennt.is. Upplýsingar um nám og inntökuskilyrði Háskólabrúar Keilis veitir Skúli Freyr Brynjólfsson náms- og starfsráðgjafi hjá Keili í síma 578 4000, skuli.b@keilir.net. Hvað kostar þetta? Verkefnið er unnið í samvinnu við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins með styrk úr Fræðslusjóði og er því raunfærnimatið þátttakendum að kostnaðarlausu.

bottom of page