top of page

Félagsmenn BSRB hjá sveitarfélögum munu líka fá 105 þúsund króna innágreiðslu 1. ágúst.

Á samningafundi stéttarfélaga bæjarstarfsmanna og BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga var samkomulag um að launagreiðendur greiði félagsmönnum aðildarfélaga BSRB ,105 þúsund króna innágreiðslu þann 1. ágúst næstkomandi.

Samkvæmt texta samkomulagsins þá eru aðilar sammála því að þann 1. ágúst 2019 verði hverjum starfsmanni greidd hlutfallslega miðað við starfshlutfall innágreiðsla á væntanlegan samning að upphæð kr. 105.000, miðað við starfstíma 1. apríl 2019, til og með 30. júní 2019. Starfsmenn í fæðingarorlofi og tímavinnufólk eiga einnig rétt á eingreiðslu.

Greiðslan er til komin vegna tafa sem orðið hafa á gerð kjarasamninga. Í nýrri viðræðuáætlunum kemur fram að stefnt sé að því að ljúka nýjum kjarasamningin fyrir 15. september, og að stutt hlé verði gert á viðræðum á meðan skrifstofa Ríkissáttasemjara er lokuð í sumar, enda hefur reynslan sýnt að lítið hefur gengið í kjaraviðræðum yfir hásumarið.

bottom of page