top of page

Styrktarsjóður BSRB

Breyttar reglur vegna fæðingarstyrks

Reglur Styrktarsjóðs BSRB um fæðingarstyrki hafa tekið breytingum og nú þarf ekki að skila vottorði frá vinnuveitanda vegna fæðingarstyrkja. Nóg er að skila fæðingarvottorði frá Þjóðskrá (sótt um á skra.is) ásamt umsókn til að fá úthlutaðann styrk.

Nýjar úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB árið 2019

Úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB

1. Sjóðurinn greiðir bætur til sjóðfélaga í slysa- og veikindatilfellum eftir því sem nánar er mælt fyrir í þessum reglum. Sjóðurinn styrkir einnig fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum sbr. lið 5.

2. Rétt til dagpeninga eða styrks úr sjóðnum eiga þeir sem aðild eiga að sjóðnum og njóta veikindaréttar samkvæmt gr. 2.2.1 í samkomulagi BSRB um veikindarétt enda hafi verið greitt vegna þeirra í sjóðinn a.m.k. 6 mánuði fyrir styrkveitingu.

3. Dagpeningar greiðast úr sjóðnum með eftirfarandi hætti:

a. Dagpeningar greiðast frá þeim tíma sem samnings-/lögbundinni launagreiðslu frá atvinnurekanda lýkur.

b. Upphæð dagpeninga skal vera 80% af meðal heildarlaunum síðustu 12 mánuði. Sé starfstími skemmri skal miðað við meðaltal launa þann tíma.

c. Heimilt er að greiða dagpeninga hlutfallslega ef sjóðfélagi getur ekki vegna veikinda unnið fulla vinnu samkvæmt læknisráði.

d. Heimilt er að greiða dagpeninga í allt að 60 daga vegna langvarandi veikinda maka eða barna sjóðfélaga enda missi hann launatekjur vegna þeirra. Börn eru 18 ára og yngri. Sjóðfélagi skal þó hafa náð eins árs sjóðsaðild til að njóta þessarar heimildar.

4. Réttur sjóðfélaga til dagpeninga á hverjum 12 mánuðum er:

a. Starfstími 6 til 12 mánuðir, 45 dagar.

b. Starfstími lengri en 12 mánuðir, 90 dagar, þó þannig að samanlagt greiðslutímabil vinnuveitanda og sjóðsins verði aldrei lengra en 360 dagar. Þá er heimilt að greiða dagpeninga í allt að 45 daga til þeirra sem hafa lokið 360 daga veikindarétti hjá launagreiðanda.

Dagpeningar greiðast ekki lengur en ráðningu starfsmanns er ætlað að standa.

5. Sjóðurinn styrkir eftirfarandi:

a. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 fær styrk til sjúkraþjálfunar, iðjuþjálfunar, sjúkranudds, nálastungumeðferðar, hnykklækninga (kiropraktor), 2.500 kr. fyrir hvert skipti, allt að 25 skipti á ári. Einnig þjálfun hjá Hjarta- og lungnastöðinni eða sambærilegum stofnunum. Styrkur fyrir þessi tilfelli skal þó að hámarki vera 62.500 kr. á ári.

b. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 fær styrk til krabbameinsleitar 8.800 kr. einu sinni á ári. Komi til framhaldsrannsóknar er veittur styrkur allt að 10.000 kr.

Sjóðfélagi fær styrk til krabbameinsskoðunar í ristli og blöðruhálskirtli að hámarki 10.000 kr.

Sjóðfélagi fær styrk til skoðunar hjá Hjartavernd og Heilsuvernd allt að 20.000 kr. einu sinni á ári.

c. Sjóðurinn tekur þátt í ferðakostnaði sjóðfélaga sem þurfa að fara landshluta á milli til aðgerða eða rannsókna að læknisráði vegna þeirra sjálfra, maka þeirra og barna, enda hafi verið greitt vegna þeirra í sjóðinn í 6 mánuði af síðustu 12. Sækja verður um styrk til Tryggingastofnunar. Sé þeirri beiðni hafnað greiðir sjóðurinn 10.000 kr. fyrir 250 - 400 km akstur, 15.000 kr. fyrir 400 – 600 km akstur, 20.000 kr. fyrir 600 – 800 km akstur og 25.000 kr. fyrir 800 km akstur eða meira. Miðað er við ferðalag fram og til baka. Greitt verður að hámarki fyrir þrjár ferðir á hverju 12 mánaða tímabili. Sjóðstjórn er heimilt að víkja frá þessum viðmiðunum ef fyrir því liggja ríkar ástæður.

d. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum, fær styrk að hámarki 23.000 kr. á ári samkvæmt reikningi frá eftirtöldum aðilum. Líkamsræktarstöðvum, sundstöðum, skíðastöðum eða íþróttafélagi. Einnig heilsurækt sem telst sambærileg að dómi sjóðstjórnar. Sjóðurinn veitir ekki styrki vegna kaupa á gatakortum sundstaða.

e. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk til ættleiðingar barns 200.000 kr. í eitt skipti. Þá fær sjóðfélagi styrk til tæknifrjóvgunar allt að 150.000 kr. á hverjum 24 mánuðum.

f. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk til sjónlagsaðgerðar/augasteinsaðgerða á öðru auga 50.000 kr. eða 100.000 kr. fyrir bæði augu. Einnig fær sjóðfélagi styrk til gleraugnakaupa einu sinni á hverjum 36 mánuðum. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 45.000 kr., þó að hámarki 40.000 kr.

g. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk til meðferðar hjá heilsustofnunum og heilsuhótelum. Greiddar eru 2.500 kr. á dag fyrir allt að 42 daga á ári.

h. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 fær styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum viðurkenndum meðferðaraðilum: Félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða

sálfræðingi. Greiddur er helmingur reiknings (þess hluta sem sjóðfélaginn greiðir), þó að hámarki 80.000 kr. á ári.

6. Útfararstyrkur.

a. Greiddur er 200.000 kr. styrkur vegna útfarar vegna þeirra sjóðfélaga sem verið hafa starfandi a.m.k. 12 mánuði samfellt fyrir andlát.

b. Greiddur er 200.000 kr. styrkur vegna útfarar fyrrverandi sjóðfélaga sem látið hafa af störfum og farið á ellilífeyri/örorkulífeyri á síðustu 5 árum og voru sjóðfélagar síðustu 12 mánuði samfellt fyrir starfslok.

c. Greiddur er 100.000 kr. styrkur vegna útfarar sjóðfélaga sem farið hafa á ellilífeyri/örorkulífeyri eftir 1.1.2002 og voru sjóðfélagar síðustu 12 mánuði samfellt fyrir starfslok.

d. Greiddur er 100.000 kr. styrkur vegna útfarar barna sjóðfélaga, börn eru 18 ára og yngri.

Styrkurinn er greiddur til þess sem útförina annast.

7. Sjóðstjórn er heimilt að víkja frá framangreindum reglum og veita styrk vegna sérstakra aðstæðna sem hafa í för með sér launamissi eða veruleg fjárútlát sjóðfélaga vegna veikinda hans sjálfs eða nánustu fjölskyldu.

8. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 getur sótt um styrk vegna tannlæknakostnaðar. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000 kr. á 24 mánaða tímabili, þó að hámarki 150.000 kr. Réttur til styrkja stofnast ekki aftur fyrr en 12 mánuðir eru liðnir frá því að 24 mánaða tímabilinu lýkur.

Hægt er að sækja um styrkinn oftar en einu sinni á 24 mánaða tímabili. Kvittanir/aðgerðardagsetningar mega aldrei vera eldri en 12 mánaða gamlar.

9. Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 getur sótt um styrk vegna kaupa á heyrnartækjum. Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000 kr., þó að hámarki 150.000 kr. Styrkurinn miðast við kaup á tveimur tækjum á 36 mánaða tímabili.

10. Sjóðfélagi sem hefur verið starfandi síðustu 12 mánuði fyrir fæðingu barns og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs á rétt á styrk. Við útreikning upphæðar er miðað við greidd iðgjöld í sjóðinn síðustu

12 mánuði, ef iðgjaldaupphæð nær 33.300 kr. er styrkurinn 240.000 kr. Nái iðgjaldaupphæðin ekki þessu marki lækkar styrkurinn hlutfallslega miðað við inngreidd iðgjöld.

Styrkurinn er tvöfaldur við tvíburafæðingu og þrefaldur við þríburafæðingu. Sömu reglur gilda um ættleiðingar barna yngri en 5 ára. Hálfur styrkur er greiddur vegna fósturláts eftir 18 vikur og andvanafæðingar. Umsókn þarf að hafa borist innan 18 mánaða frá fæðingu barns.

11. Sjóðsaðild:

Almenn réttindi. Sjóðfélagar öðlast rétt til úthlutunar úr Styrktarsjóði BSRB eftir 6 eða 12 mánaða iðgjaldagreiðslur.

Yfirfærsla á réttinum á milli sjóða. Sjóðfélagar öðlast rétt til úthlutunar eftir iðgjaldagreiðslu í einn mánuð ef hann, fyrir það greiðslutímabil, átti rétt til úthlutunar úr sjóði annars stéttarfélags, enda veiti sá sjóður fyrrum sjóðfélögum Styrktarsjóðs BSRB samskonar rétt.

Í fæðingarorlofi. Sjóðfélagar sem fara í fæðingarorlof og velja að greiða stéttarfélagsgjald meðan að á fæðingarorlofi stendur halda fullum réttindum.

Í launalausu leyfi. Réttur til úthlutunar úr sjóðnum fellur niður á meðan á launalausu leyfi stendur en rétturinn stofnast að nýju strax við fyrstu iðgjaldagreiðslu að leyfi loknu.

Við starfslok. Réttur til úthlutunar úr Styrktarsjóði BSRB fellur niður þegar sjóðfélagi skiptir um félag og veitir sjóðurinn aðeins styrki vegna þeirra útgjalda sem félagsmaður stofnar til á meðan hann er í starfi.

Sjóðfélagi sem hættir störfum vegna aldurs eða örorku á rétt í 6 mánuði eftir starfslok.

Atvinnulausir sem greiða félagsgjald til stéttarfélaga sem eiga aðild að sjóðnum geta sótt um styrki skv. eftirtöldum greinum; 5a, 5b, 5d, 5h og 6.gr. Atvinnulausir ávinna sér ekki rétt á meðan á atvinnuleysi stendur en viðhalda þeim rétti sem þeir höfðu þegar þeir voru í starfi. Missi atvinnulausir bætur vegna veikinda getur sjóðurinn styrkt þá sem svarar 100% af atvinnuleysisbótum í allt að 45 daga.

Styrkir eru ekki veittir vegna kostnaðar sem stofnað var til áður en starf það hófst sem gefur rétt til aðildar að sjóðnum.

12. Umsóknir og reglur:

Umsóknir og gögn. Umsókn um styrki skal gerð á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu Styrktarsjóðs BSRB og hjá aðildarfélögum sjóðsins. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu sjóðsins á slóðinni http://styrktarsjodur.bsrb.is.

Skila þarf inn frumriti reiknings þar sem fram kemur nafn og kennitala umsækjanda, dagsetningar og upphæðir. Á reikningnum þarf að vera stimpill eða merki þess viðurkennda meðferðaraðila eða fyrirtækis sem gefur reikninginn út og mega kvittanir eða aðgerðardagsetningar aldrei vera eldri en árs gamlar þegar að sótt er um hjá sjóðnum. Með umsóknum skulu fylgja öll gögn sem sjóðstjórn telur nauðsynleg hverju sinni (sjá umsóknareyðublað Styrktarsjóðs BSRB). Styrkir úr sjóðnum greiðast a.m.k. mánaðarlega. Umsókn skal skilað inn fyrir 15. hvers mánaðar en að jafnaði er greitt út síðasta dag hvers mánaðar eða næsta virka dag á eftir

.

Stjórn sjóðsins áskilur sér allan rétt til að breyta reglunum með 3ja mánaða fyrisvara eftir því sem þörf krefur, hvort sem er til þrengingar á reglunum eða útvíkkunar. Fé sjóðsins verður látið ráða því á hverjum tíma.

Gildir frá 1. janúar 2019

​Styrktarsjóður BSRB • Grettisgötu 89 • 105 Reykjavík • Sími: 525 8380 • postur@styrktarsjodur.

bottom of page