Fræðslusetrið Starfsmennt. Fjarnám
Opið fyrir skráningu á námskeið til að styðja við innleiðingu jafnlaunastaðals í fjarnámi. Starfsmennt tók þátt í tilraunaverkefni um þróun og innleiðingu jafnlaunastaðals m.a. með því að bjóða upp á námskeið til að styðja við innleiðingu staðalsins fram til vorsins 2018. Þá var tilraunaverkefninu í raun lokið því lög og reglugerð um jafnlaunavottun höfðu verið staðfest. Utanumhald námskeiða er nú í höndum Endurmenntunar HÍ. Starfsmennt greiðir þó áfram fyrir félagsmenn aðildarfélaga sinna á námskeiðin og nú hafa bæst við námskeið í fjarnámi. Námskeiðin eru ætluð þeim sem stýra eða gegna ábyrgðarhlutverki við innleiðingu jafnlaunastaðalsins.
NámskeiðDags.
Jafnlaunastaðall: I. Kynning á jafnlaunastaðli og inngangur - FJARNÁMSKEIÐ 21.jan.
Jafnlaunastaðall: II. Gæðastjórnun og skjölun - FJARNÁMSKEIÐ 28.jan.
Jafnlaunastaðall: III. Gerð verklagsreglna og annarra skjala í gæðakerfum - FJARNÁMSKEIÐ 04.feb.
Jafnlaunastaðall: IV. Starfaflokkun - FJARNÁMSKEIÐ 11.feb.
Jafnlaunastaðall: V. Launagreining - FJARNÁMSKEIÐ 18.feb
Nám og þjónusta á vegum Starfsmenntar eru opin aðildarfélögum okkar, þeim að endurgjaldslausu. Öðrum er bent á endurgreiðslur stéttarfélaga og mannauðssjóða