top of page

Fjölbreyttar tillögur að aðgerðum í menntamálum

BSRB kallar eftir því að aðgerðir stjórnvalda í menntamálum í kjölfar COVID-19 faraldursins verði unnar á heildstæðan hátt með þarfir einstaklingsins og þarfir samfélagsins í fyrirrúmi. Bandalagið hefur sent stjórnvöldum sínar tillögur, þar sem meðal annars er lagt til að unnin verði færnispá, múrar milli skólastiga verði brotnir niður og upplýsingagjöf verði aukin með miðlægum upplýsingavef.

Í tillögum BSRB, sem komið hefur verið til stjórnvalda, er meðal annars lögð áhersla á að vinna verði sett í gang sem fyrst við að gera færnispá fyrir íslenskan vinnumarkað. Gögn verði notuð til að beina atvinnuleitendum í menntaúrræði í greinum þar sem skortur á starfsfólki er fyrirsjáanlegur.

Bandalagið leggur til að gerðar verði breytingar á námi í samfélagslega mikilvægum greinum. Þannig þurfi að tryggja fjármagn fyrir fagháskólanám fyrir sjúkraliða, en framhaldsnám fyrir stéttina hefur legið niðri undanfarin ár. Þá vill BSRB að nám leikskólaliða og stuðningsfulltrúa í skólum verði fært upp á þriðja hæfniþrep líkt og nýlega var gert fyrir nám félagsliða.

Fjallað er um upplýsingagjöf í tillögum BSRB og lagt til að menntamálayfirvöld komi á fót miðlægum upplýsingavef fyrir allt nám á Íslandi. Í dag eru upplýsingar um ýmiskonar nám á mörgum stöðum og því gott tækifæri til að samræma upplýsingar og koma þeim fyrir á einum stað, líkt og gert hefur verið í Danmörku og Noregi.

Í áherslum BSRB er einnig fjallað um jafnrétti til náms, hvort sem er út frá kyni, aldri, þjóðerni eða öðrum þáttum. Gæta verði sérstaklega að

Í tillögum BSRB er kallað eftir því að hindranir milli skólastiga verði ekki til þess að einstaklingar sem hafa átt í erfiðleikum með að fóta sig í kerfinu lendi í vandræðum. Þá er lögð áhersla á að raunfærnimatið, sem hefur gefist afar vel, verði víkkað út þannig að atvinnuleitendur geti farið í gegnum ferlið sér að kostnaðarlausu.

Íáherslum BSRB er einnig fjallað um jafnrétti til náms, hvort sem er út frá kyni, aldri, þjóðerni eða öðrum þáttum. Gæta verði sérstaklega að viðkvæmum hópum og greina sérstaklega hættu á atvinnumissi og langtímaatvinnuleysi.

Lesa má tillögur BSRB í menntamálum í heild sinni á bsrb.is

bottom of page