top of page

Skipting ellilífeyrisréttinda

Sjóðfélagi og maki geta gert samkomulag um að skipta ellilífeyrisréttindum. Skiptingin tekur ekki til örorku-, maka- eða barnalífeyris. Skiptingin þarf að vera gagnkvæm og jöfn.

Hægt er að skipta ellilífeyrisréttindum með þrenns konar hætti:

· Skipta þeim ellilífeyrisgreiðslum sem þegar eru hafnar.

· Skipta áunnum ellilífeyrisréttindum, enda sé það gert í síðasta lagi áður en sjóðfélaginn hefur náð 65 ára aldri.

· Skipta framtíðarréttindum, þ.e. þeim ellilífeyrisréttindum sem munu ávinnast eftir að samkomulag um skiptinguna hefur verið gert.

Báðir aðilar þurfa að undirrita samning, leggja þarf fram sambúðar og/eða hjúskaparvottorð sem staðfestir það tímabil sem skipta ber samkvæmt samningi auk þess sem báðir aðilar þurfa að leggja fram læknisvottorð. Læknisvottorðin eru send trúnaðarlækni sjóðsins til yfirferðar.

Sé heimild til skiptingar, þ.e. fullnægjandi gögn lögð fram og trúnaðarlæknir telur ekki sjúkdóma eða heilsufar draga úr lífslíkum umsækjenda, er samningurinn sendur til þeirra lífeyrissjóða sem umsækjendur hafa greitt til á tilgreindu tímabili. Rétt er að taka fram að óvarlegt kann að vera að gera samning um skiptingu ellilífeyrisréttinda eigi einstaklingur réttindi í svokölluðum hlutfallssjóðum (B deildar sjóðum) þar sem makalífeyrisréttindi í þeim sjóðum eru greidd ævilangt.

Hjá Brú lífeyrissjóði er aðstoðað við gerð samnings um skiptingu ellilífeyrisréttinda og veitt ráðgjöf. Hægt er að hringja í síma 5 400 700, koma við á skrifstofu þeirra að Sigtúni 42, 105 Reykjavík eða senda tölvupóst á lifeyrismal@lifbru.is.

Hægt er að finna frekari upplýsingar inná vef Landssamtaka lífeyrissjóða, þar sem algengum spurningum um skiptingu lífeyrisréttinda er svarað.

bottom of page